Skip to product information
1 of 1

Glossy Gel

5 fyrir 4 - Glossy Gel Límmiða Mix

5 fyrir 4 - Glossy Gel Límmiða Mix

Regular price 9.160 ISK
Regular price Sale price 9.160 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Veldu 5 pakka af Glossy Gel límmiðum en borgaðu bara fyrir 4! 

 

Þú getur valið úr öllum þeim litum sem eru í boði hjá Glossy Gel.

Þetta tilboð jafngildir 20% afslætti og því er ekki hægt að nota afsláttarkóða á þennan pakka.

Athugið: Glossy Gel límmiðana þarf að herða undir naglalampa. Hægt er að kaupa Glossy Gel naglalampa hér eða í Starter Kit hér.

Glossy Gel eru einfaldir, hálfhertir gel-límmiðar sem gefa þér fallegar og endingargóðar neglur þegar þér hentar. Glossy Gel límmiðarnir eru auðveldir í notkun, setjast fullkomlega á þínar neglur og harðna undir nagla lampa til að tryggja að þeir endist á í allt að 2 vikur.

Helstu eiginleikar:

Auðvelt að notaÞægileg lausn sem hentar bæði byrjendum og þeim sem eru vanir.

Góð endingMeð réttum undirbúningi og ásetningu samkvæmt leiðbeiningum, endist Glossy Gel í allt að tvær vikur.

Engin lykt og ekkert vesen: Engin lykt eða fljótandi lím – bara einfaldir gel-límmiðar sem veita góða vörn fyrir neglurnar þínar.

Gott úrval af stærðum: Í pakkanum eru 20 stykki af gel-límmiðum í 10 mismunandi stærðum svo allir ættu að finna stærð sem hentar.

Auðvelt að fjarlægjaHægt er að fjarlægja Glossy Gel án þess að nota leysiefni eða skaða og veikja neglurnar.

Innifalið í pakka: 

5 pakkar af Glossy Gel límmiðum sem innihalda:

20 gel-límmiðar í 10 mismunandi stærðum

1x Lítil naglaþjöl

1x Tréprik

2x Sótthreinsiklútar

View full details

Collapsible content

Leiðbeiningar

Glossy Gel á að geyma í upprunalegu umbúðunum þar til þeir eru notaðir. Við útsetningu fyrir UV-ljósi, sólarljósi og dagsbirtu munu þeir byrja að harðna á plastfilmunni. 

Glossy Gel Límmiðana og Top Coat á aldrei að bera á í beinu sólarljósi því það byrjar strax að harðna af sólargeislunum.

Undirbúningur naglanna

  1. Þvoðu hendur til að fjarlægja olíur og ýttu naglaböndum niður.
  2. Pússaðu yfir, sléttu og mótaðu neglurnar með buffer og naglaþjöl. 
  3. Hreinsaðu neglurnar vel með sótthreinsiklút og leyfðu þeim að þorna.

Ásetning

  1. Finndu rétta stærð og fjarlægðu verndarfilmuna.
  2. Taktu gelið af plastfilmunni og límdu það varlega á nöglina. 
  3. Notaðu fingurgómana og tréprikið sem fylgir með til að festa brúnirnar vel niður. Það er mikilvægt að festa gelið mjög vel niður til að fá sem bestu endingu. Þrýstu tréprikinu varlega niður á endana á gelinu.
  4. Fjarlægðu gelið sem er umfram þína nögl. Notaðu naglaskæri og naglaþjöl til að pússa gelið alveg niður að þinni nögl. Glossy Gel er ekki ætlað sem framlenging, svo pússaðu það niður í lengd naglanna þinna.
  5. Settu neglunar undir naglalampann í 60-90 sekúndur. ATHUGIÐ: settu alltaf plastfilmuna með ónotuðu límmiðunum í svarta umslagið á meðan lampinn er í gangi svo þeir miðar harðni ekki.
  6. Hér getur þú sett á þig Glossy Gel Top Coat. Berðu á þig þunnt lag á hverja nögl. Við mælum með amk 150 sek ef þú ert að nota Glossy Gel naglalampann.
  7. Ekki setja hendurnar í vatn í 1-2 klukkustundir eftir ásetningu.
  8. Taktu mynd og taggaðu okkur @glossygel.is, okkur finnst gaman að sjá hvernig neglurnar ykkar koma út!

 

Góð Ráð:

  • Geymið alltaf Glossy Gel límmiðana í svarta umslaginu sem það kemur í. Gott er að venja sig á að setja það alltaf aftur í umslagið svo það verði ekki útsett fyrir uv/led ljósi eða sólarljósi og byrji að harðna á plastfilmunni.

 

  •  EKKI vera í beinu sólarljósi þegar þú setur límmiðana á þig þá harðna þeir og verða ónothæfir.

 

  • Einn pakki inniheldur eina ásetningu. Magn límmiðanna í pakkanum eru fleiri svo allir geti fundið stærð sem hentar sínum nöglum. Við mælum með að geyma restina af límmiðunum þar sem það er gott að grípa í auka límmiða ef það þarf að lagfæra. 

 

  • Ef þú ert með stuttar neglur er hægt að klippa Glossy Gel í tvennt og nota á sitthvora hendina. Þannig nærðu allavega tveimur ásetningum úr einum pakka!

 

  • Það er hægt teygja til Glossy Gel límmiðana til þess að láta þá passa fullkomlega á neglurnar. 

 

  • Ef gelið virðist stíft á plastfilmunni er hægt að hita það með hárblásara í nokkrar sek. Hafðu gelið í svarta umslaginu ef þetta er gert. 

 

  • Passið að setja Glossy Gel ekki á naglaböndin því þá getur það byrjað að lyftast upp af nöglunum. Góður undirbúningur naglanna er algjört lykilatriði.

 

  • Forðist að nota olíur í kringum neglurnar þegar þið notið Glossy Gel.

 

  • Ef þú notar Glossy Gel Top Coat og það er enn stammt eftir að þú hefur sett það undir naglalampann þá þarf lengri tíma undir lampanum.

Myndband:

 

Hvernig á að fjarlægja Glossy Gel

  1. Notaðu tréprikið til að lyfta köntunum á gelmiðunum varlega af nöglunum. Gott er að setja olíu undir kanntana því þá byrjar gelið að losna frá nöglinni. 
  2. Hreinsaðu neglurnar með rakri bómullarskífu eða þvoðu þér um hendurnar með vatni og sápu.
  3. Ef það eru leifar af lími á nöglunum þá getur þú notað olíu eða acetone til að ná því af. 

Góð Ráð

  • Geymið alltaf Glossy Gel límmiðana í svarta umslaginu sem það kemur í. Gott er að venja sig á að setja það alltaf aftur í umslagið svo það verði ekki útsett fyrir uv/led ljósi og byrji að harðna á plastfilmunni. 

  • Einn pakki inniheldur eina ásetningu. Magn límmiðanna í pakkanum eru fleiri svo allir geti fundið stærð sem hentar sínum nöglum. Við mælum með að geyma restina af límmiðunum þar sem það er gott að grípa í auka límmiða ef það þarf að lagfæra. 

  • Ef þú ert með stuttar neglur er hægt að klippa Glossy Gel í tvennt og nota á sitthvora hendina. Þannig nærðu allavega tveimur ásetningum úr einum pakka!

  • Það er hægt teygja til Glossy Gel límmiðana til þess að láta þá passa fullkomlega á neglurnar. 

  • Ef gelið virðist stíft á plastfilmunni er hægt að hita það með hárblásara í nokkrar sek. Hafðu gelið í svarta umslaginu ef þetta er gert. 

  • Passið að setja Glossy Gel ekki á naglaböndin því þá getur það byrjað að lyftast upp af nöglunum. Góður undirbúningur naglanna er algjört lykilatriði.

  • Forðist að nota olíur í kringum neglurnar þegar þið notið Glossy Gel.

Sending

Allar pantanir eru afgreiddar á 1-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram.

Innihaldsefni

Polyacrylic Acid, Acrylates Copolymer, GlycerinePropoxylate Triacrylate, Isopropylthioxanthone. May contain: D&C Red NO.6 Barium Lake, D&C Red NO.7 Calcium Lake, FD&C Yellow NO.5 Aluminum Lake, FD&C Yellow NO.10, FD&C Blue NO.1, Black Iron Oxide, Titanium Dioxide, Aluminum Powder, Bismuth Oxychloride, Mica, Isobutylphenoxy Epoxy resins, Polyethylene Terephthalate, Fragrance Compound.